Það er góður gangur í pörunum hjá Malta Jim þennan fyrsta mánuð hans á landinu. Alls hafa fjórar tíkur heimsótt hann þegar þetta er skrifað.
Reikna má með því að Jim eigi eftir að vera á landinu í um fimm mánuði í viðbót. Næsta mánuðinn eða svo verður hann hjá okkur en eftir það mun hann færa sig til innanlands.
Jim er mjög elskulegur hundur og draumur í allri umgengni.